Síðan verður ekki uppfærð lengur (nema -blog.central.is- lagist, sem er ólíklegt)
Verri skrifarar.
Beint á gömlu síðuna.
08.11.2007 20:19:03 / Ísfirðingur

Skammtíma heilbrigðisfrávik á ganglim.

Bassi er nú laus við umbúðirnar af fætinum. Þær voru fjarlægðar í gærkvöldi við litla hrifningu hans. Þegar fóturinn var loks orðinn "eðlilegur" hélt Bassi þó áfram að hoppa á þremur. Einhverra hluta vegna hlífir hann fætinum úti við en gengur þó á öllum innandyra og þar virðist ekkert ama að  honum. Líklega er hann eitthvað aumur ennþá, en lagast vonandi á næstunni.

Mér hefur gengið bölvanlega að hlaða inn myndum með pistli sem ég var að setja saman. Á endanum bjó ég til nýja myndasíðu þar sem ég óttaðist að sú gamla væri orðin yfirhlaðin. Sú nýja er eilítið hraðari, ekki þó svo að neinu nemi. Pistillinn er raunar nær eingöngu myndatextar, því myndir segja svo miklu meira en orð, hvað þá þetta endemis bull sem frá okkur Bassa kemur!

Í gær saknaði ég myndavélarinnar þó. Þannig er að í húsnæði á Smiðjuvegi, neðan við Bónus og gegnt mínum vinnustað, hefur  undanfarin ár verið rekið bakarí með nokkrum mismunandi nöfnum og kennitölum. Síðast var þar útibú frá "Bakaríinu Austurveri" en það setti upp tærnar í fyrra og því hefur enginn rekstur verið á staðnum í u.þ.b. eitt ár. Nú fyrir stuttu opnaði þar matsala undir merkjum "Hlölla báta" Öll fyrirtæki þurfa að koma frá sér rusli og aðstaða "Hlölla báta" til þess hefur okkur virst vera lítill plastgámur sem komið var fyrir við hlið aðgengis að veitingasölunni. Þeir sem eiga að tæma gáminn hafa svo annaðhvort gleymt því eða hreinlega ekki gert ráð fyrir að hann fylltist svo ört, því var í fyrradag kominn kúfur á innihaldið svo lokið féll ekki niður. Í gær hafði heldur aukist á og pokar með rusli höfðu hrunið niður úr gámnum og lágu kringum hann. Að auki gjólaði lítið eitt, nóg til að lyfta lokinu af hrúgunni sem þannig var óvarin fyrir flugumferð.

Og krummi lét ekki segja sér oft af þeirri veislu sem þarna bauðst fyrirhafnarlítið. Tafarlaust var krunkað til þings og starranum boðið að slást í hópinn. Það virtist hins vegar ákveðið að mávarnir fengju ekkert af veislunni.

Krummi gekk til verks af stökum dugnaði. Hver pokinn af öðrum var opnaður og innihaldið kannað með því að dreifa því vel og vandlega um svæðið. Raunar var allmikið af veisluföngum flutt um nokkurn veg, uppá þakkanta og í næstu ljósastaura þaðan sem það dreifðist svo yfir enn stærra svæði.

Eins og fyrr sagði saknaði ég myndavélarinnar. Síminn góði var hins vegar í vasanum og ég dró hann upp og hringdi eina mynd. Á henni má sjá matseðil garðpartýsins á víð og dreif, og krumma sitjandi á þakkanti hússins fyrir ofan. Lítið eitt til vinstri (ber í svarta bílinn) er svo annar að skima eftir næstu munnfylli.

Mynd3.jpg picture by isfirdingur

Í dag var gámurinn lokaður. Hvort hann hafði verið tæmdur eða kúfurinn aðeins tekinn af veit ég ekki, en tveir Bónuspokar lágu við hlið hans ásamt fleira drasli.

.......og krummi var mættur!

 

Emil Páll skrifaði
Þannig að það er „líflegt" þarna í kring um þig.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  33  Alls: 63353