...og nákvæmlega tólf ár síðan hún skaust í heiminn á Ísafirði,
á afmælisdegi Rósu langömmu sinnar.
Við vildum hafa hana framarlega í stafrófinu en reyna einnig að
koma ömmu fyrir í nafninu. Fyrra nafnið fannst fljótlega.
Seinna nafnið var ákveðið á kirkjutröppunum um leið og við gengum
til skírnar, til heiðurs Halldóri afa og Halldóru ömmu í Kópa.
Hún var svo skírð á sunnudagsmorgni í kirkjuskólanum, með
Steina afa, Bríeti ömmu, Áróru stóru systur og öllum hinum
börnunum, af því að þar hafði mamman starfað með góðu fólki um
nokkurn tíma. Það var skemmtilegasti dagurinn í kirkjuskólanum þann
veturinn.

Viðskiptafræðingurinn verðandi (í gráu skyrtunni) og
menntaskólaneminn og bíleigandinn (sjá pistil 7.10´07) Áróra
(í bláum kjól) fylgjast með.
Óskabarn í öllu tilliti.
Hún hefur alltaf verið og verður alltaf yndisleg!
Stubban!
Bergrós Halla!
