Síðan verður ekki uppfærð lengur (nema -blog.central.is- lagist, sem er ólíklegt)
Verri skrifarar.
Beint á gömlu síðuna.
21.10.2007 14:51:15 / Ísfirðingur

Ég lýsi hér með eftir......

........öllum fáanlegum upplýsingum um skipsflakið, eða skipshlutann sem liggur við norðanverðan Fossvoginn innarlega, neðan við kirkjugarðinn. Þetta er botnhluti, líklega miðja upp að lestargólfi. Mér sýnist afturhluti botnsins liggja þarna líka en á eftir að skoða það betur á næstu stórstraumsfjöru. Þetta járnabrak fer að mestu í kaf á flóði. Það er aðeins örstuttur gangur frá bílastæði Suðurhlíðaskólans til vesturs fram á bakkann þar sem flakið liggur, og því afar auðvelt fyrir þá sem vilja átta sig á hvað um ræðir að komast á staðinn.

Veit einhver sem les síðuna eitthvað um þetta flak?

 Ég hef enn bætt góðum skrifara, Guðmundi Stefánssyni, í hópinn hér neðst til vinstri. Hann kynnir sig sjálfur á sinni síðu.

Emil Páll skrifaði
Mun skoða þetta þegar ég verð á ferðinni og gef mér tíma
Emil Páll skrifaði
Hafþór Hreiðarsson á Húsavík var að giska á það í samtali við mig á vefnum að þessi græni sem þú spyrð um á síðunni minni sé Höfrungur BA 60, sem Þjóðminjasafnið hefur varðveitt síðan fyrir 1970.
Gunnar Th. skrifaði
Fletti Höfrungi/Kára Sölmundarsyni EA upp í "Íslensk skip" og það er að sjá sami bátur. Líklegast hef ég mislesið númerið á bógnum, það er mjög máð og illlæsilegt. Kærar þakkir!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  33  Alls: 63353